KFUM og KFUK reka vinsælar sumarbúðir fyrir drengi og stúlkur að Hólavatni í Eyjafirði. Hólavatn er er framarlega í
austanverðum Eyjafirði, rúmlega 40 kílómetra inn af Akureyri að austan. Nánasta umhverfi staðarins er heillandi og fjölmargar skemmtilegar
gönguleiðir eru í næsta nágrenni, hvort sem það er til norðurs yfir hólana í átt að Hólakirkju eða til suðurs
í Leyningshóla, við mynni Villingadals en þeir eru náttúruperla sem er einstök í sinni röð í Eyjafirði. Þar eru einu leifar
af náttúrulegum birkiskógi sem eftir eru í héraðinu og ná að mynda samfelldan skóg sem vex í heillandi landslagi hóla og lauta
sem myndast hafa við framhrun úr fjallinu fyrir ofan við lok síðustu ísaldar.
Heimasíðu Hólavatns má sjá hér.
Gistiaðstaða fyrir hópa
Auk sumarbúða fyrir börn hefur staðurinn einnig langa sögu þegar kemur að útleigu fyrir hópa að vetrarlagi. Húsið er kynnt
með rafmagni og heitt og kalt vatn er allt árið um kring. Framhaldsskólahópar, grunnskólahópar, æskulýðsfélög,
barnakórar, deildir í KFUM og KFUK og fermingabarnahópar meðal þeirra mörgu aðila sem nýtt hafa sér vetrardvöl að Hólavatni
á undanförnum árum.
Hólavatn er einnig á Facebook og síðu staðarins má sjá hér.

