Lóðir til úthlutunar

Í hverfinu norðan Hrafnagilsskóla og austan Eyjafjarðarbrautar vestri eru 14 byggingarlóðir lausar til umsóknar. Lóðirnar eru fyrir einbýlishús á einni

Lóðir í Hrafnagilshverfi

Í hverfinu norðan Hrafnagilsskóla og austan Eyjafjarðarbrautar vestri eru 14 byggingarlóðir lausar til umsóknar. Lóðirnar eru fyrir einbýlishús á einni hæð (E I) lóðir nr. 2-4-6-8-10-12-14-38-40 og á einni eða tveimur hæðum (E I/II) lóðir nr. 1-3-7-9-23.

Á fundi sveitarstjórnar 27. mars 2013 var samþykkt að fella niður gatnagerðargjald af þessum lóðum tímabundið.  Þess í stað er óskað eftir tilboðum í byggingarrétt á lóðunum.

Til greina kemur að breyta skipulagi og leyfa raðhús á hluta lóðanna.

Tilboðum í lóðirnar skal skilað til skrifstofu Eyjafjarðarsveitar í seinasta lagi mánudaginn 22. apríl 2013 kl. 14 og verða þá opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Íbúðarlóðir í nýjum hluta Hrafnagilshverfis

Lögð er áhersla á að hafist verði handa við uppbyggingu sem fyrst og að byggt verði á sem flestum lóðum.
Við mat á tilboðum verði horft til eftirfarandi þátta:
  1. Greiðslugeta til að byggja íbúðarhús þarf að vera fyrir hendi.
  2. Hefja þarf framkvæmdir á árinu annars fellur byggingarréttur úr gildi.
  3. Hús þarf að vera fokhelt innan árs frá úthlutun og utanhússfrágangi húss og lóðar lokið innan tveggja ára. Að öðrum kosti verði lagt á um 30% gatnagerðargjalds í hvoru tilviki. Gengið verði frá þessari kvöð í lóðarleigusamningi.
  4. Verð á byggingarrétti ráði en þó með fyrirvara um lið 5.
  5. Horft verði til þess hvort viðkomandi hyggist byggja fleiri en eitt hús og við hvert aukahús sé það metið til 10% aukningar í samanburði tilboða. Þannig verði verktaki sem býður í 3 lóðir 1 Mkr. í hverja metinn til jafns við tilboð í sömu lóðir á 1,2 Mkr. Komi til þess að samið verði við sama aðila um fleiri en eina lóð sé heimilt að breyta ákvæðum tl. 2 og 3 í samráði við sveitarstjórn.

Hér má sjá deiliskipulagsuppdrátt, greinargerð og byggingarskilmála og gildandi samþykkt um gatnagerðargjald. Upplýsingar um jarðveg má sjá með því að smella hér. Nokkrar prufuholur hafa verið boraðar og má sjá staðsetningu þeirra hér og niðurstöður borunar hér.

Svæði

Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar

Skólatröð 9
601 Akureyri
Sími: 463 0600 Fax: 463 0611
Netfang: esveit@esveit.is
Kennitala: 410191-2029
Opnunartími: 10:00 - 14:00 

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann hjá okkur og fáðu fréttir og fleira.??

Myndagallerý

Mynd augnabliksins