Sveitarstjórnarfundur
433. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í Félagsborg, Skólatröð 9, miðvikud. 15. maí og hefst hann kl. 12:00.
Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar, sem og á heimasíðu sveitarfélagsins.
Sveitarstjóri
Atvinna
Heimaþjónusta Eyjafjarðarsveitar óskar eftir starfsfólki til að sinna heimaþjónustu. Nánari upplýsingar á skrifstofu í
síma 463-0600 eða með tölvupósti.
Frá Hrafnagilsskóla
Innritun nýrra nemenda í fyrsta bekk, börn
fædd 2007, fer fram 8.-15. maí n. k. Hægt er að hringja í ritara í síma 464-8100 frá kl. 8:00-15:30. á sama tíma fer einnig fram
skráning annarra nemenda sem eru að flytjast í Eyjafjarðarsveit. Einnig er æskilegt að gera aðvart ef nemendur eru að flytjast í burtu.
Skólastjóri
Bókasafn Eyjafjarðarsveitar
Opnunartímar bókasafnsins fram að
sumarlokun:
Mánudagar kl. 9:00-12:30 og 13:00-16:00
þriðjudagar kl. 9:00-12:30 og 16:00-19:00
Miðvikudagar kl. 9:00-12:30 og 16:00-19:00
Fimmtudagar kl. 9:00-12:30 og 16:00-19:00
Föstudagar kl. 10:30-12:30
Lokað á uppstigningardag og annan í hvítasunnu. Síðasti útlánadagur er 31.
maí.
Frá Laugalandsprestakalli
Laugardaginn 11. maí kl.11:00 er ferming í Munkaþverárkirkju.
Fermdar verða:
Gunnhildur Erla þórisdóttir Rifkelsstöðum 2a, Jana Dröfn Sævarsdóttir öngulsstöðum 1 og
Laufey María Hlynsdóttir Akri.
Gleðilegt sumar, Hannes
Félag aldraðra í Eyjafirði
*Fyrirhuguð er heimsókn í Flugsafnið á Akureyri laugardaginn 11. maí n.k.
Hittumst þar á bílastæðinu kl. 14:00.
Stjórnin
*Sumarferðin hefst 10. júní. Gist verður 2 nætur á Hótel
Stykkishólmi.
Félagar tilkynnið þátttöku til Reynis, Jófríðar eða óttars.
Nefndin
*Kvöldganga aldraðra í Eyjafjarðarsveit 2013. Gengið verður á
þriðjudagskvöldum kl. 20:00
21. maí Eyjafjarðarbakkar suður
28. maí Svalbarðseyri
4. júní Naustaborgir
18. júní Leyningshólar
25. júní Flugvallarleið (gömlu brýrnar)
2. júlí Grundarskógur
9. júlí Niður með Glerá
16. júlí Lystigarðurinn
23. júlí Espihóll
30. júlí Kjarnaskógur
6. ágúst Eyjafjarðarbakkar norður
Göngunefndin
Samherjar - íþróttagallar
Minnum á sölu á
keppnisgöllum Samherja (kr 5.500) og UMSE heilgöllum (verð á bilinu 7.500-9.500 kr.). Myndir má sjá inn á heimasíðu Samherja http://www.samherjar.is
Pantanir þurfa að berast fyrir 10. maí á netfangið brynhildurb@unak.is (sími 863-4085) en þar þarf að koma fram stærð, áletrun (nafn og númer).
Sumardagskrá UMF Samherja Síðustu æfingar vetrarins verða vikuna fyrir Hvítasunnu. Eftir það verður hlé á æfingum þar
til sumardagskrá tekur gildi þann 3. júní.
Sjá nánar á http://www.samherjar.is/
Blómasala um Hvítasunnu
Eins og hefð er fyrir, munu UMF Samherjar selja
blóm fyrir Hvítasunnuna í ár. Við verðum á ferðinni um sveitina á föstudag og laugardag fyrir Hvítasunnu. Vinsamlegast
takið vel á móti sölufólki okkar.
Stjórnin
Vorfundur kvenfélagsins Iðunnar
-verður haldinn í Félagsborg
laugardaginn 25. maí kl. 11:00.
Vinnufundir verða 8., 15. og 22. maí í Laugarborg :-) :-) :-)
álfagallerýið á Teigi
Opið allar helgar í maí frá kl. 13:00-18:00. Fjölbreytt handverk.
Verið velkomin, framleiðendur.
Sími 894-1323
Fyrirlestur um ræktun og klippingu
ávaxtatrjáa
Fimmtudagskvöldið 9. maí kl. 19:30 í Glerárkirkju á Akureyri. Carl J. Gränz formaður
ávaxtaklúbbs Garðyrkjufélags íslands og Kristinn H. þorsteinsson garðyrkjufræðingur munu fjalla í máli og myndum um ræktun og
klippingar á ávaxtatrjám. Boðið verður upp á kaffiveitingar í hléi. Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir félaga í
Garðyrkjufélaginu en 1.000 kr. fyrir aðra.
Allir velkomnir. Fræðslukvöldið er samstarfsverkefni ávaxtaklúbbs Garðyrkjufélag íslands, Lystigarðsins á Akureyrar og
Garðyrkjufélags Akureyrar
Seinni vortónleikar Karlakórs Eyjafjarðar verða haldnir í
Glerárkirkju miðvikudaginn 8. maí kl. 20:30. Stjórnandi Petra Björk Pálsdóttir og undirleikari Páll Barna Szabo. Hljómsveit kórsins
spilar undir en hana skipa Birgir Karlsson, Haukur Ingólfsson og árni Ketill Friðriksson. óskar Pétursson syngur nokkur lög, bæði með kórnum
og einn síns liðs. Miðar verða seldir við innganginn. Miðaverð er 2.500 kr. Getum ekki tekið við kortum.
Haustferð til Vínarborgar
Karlakór Eyjafjarðar hyggur á ferð
til Vínarborgar 5.-13. október 2013. Enn eru nokkur sæti laus í hóptilboði og ef einhverjir eru áhugasamir um að fá að fljóta
með geta þeir leitað upplýsinga hjá Gunnari Svertingsstöðum í síma 893-7236 eða e-mail sverting@simnet.is
Búnaðarfélag Eyjafjarðarsveitar
útleiga á tækjum félagsins verður með lítilsháttar breytingu frá því sem verið hefur. Nú verður hluti
tækjanna staðsettur á Torfum og munu þeir feðgar Níels og þórir sjá um útleigu á þeim, en Gylfi á
Syðri-Tjörnum um hinn hlutann. Gylfi mun sjá um viðhald tækjanna.
Tæki staðsett á
Syðri-Tjörnum Tæki staðsett á
Torfum
8 t. Tankur 10.000 kr. Haugsuga
14.000 kr.
Vendiplógur 12.000 kr. 6 t.
Tankur 8.000 kr.
4 sk. Plógur 8.000 kr. 4 sk.
Plógur 8.000 kr.
2 sk. Plógur 3.000
kr. Flagjafni
8.000 kr.
Akurvalti gamli 8.000 kr. Akurvalti
nýr 10.000 kr.
Vatnsvalti 4.000 kr.
Steypuvél 5.000 kr.
úðadæla 6.000
kr.
úðadæla 6.000 kr.
Sturtuvagn 10.000 kr.
Vinnupallar 5.000 kr.
Pantanasími: Gylfi 846-9661, Níels 863-1472, þórir 862-6832.
Leigjendur eru vinsamlegast beðnir um að skila tækjunum eftir notkun á þann bæinn sem tilgreindur er hér að ofan. Tækjum skal skila hreinum og eftir
aðstæðum smurðum. Leiga reiknast frá því tæki er tekið og þangað til því er skilað. Stjórnin vill minna á
að tækjunum sé skilað strax að notkun lokinni. þetta er sérstaklega mikilvægt á annatíma.
Sumarkveðjur, stjórnin