Flýtilyklar
Nýtt á vefnum
Félagsmálanefndarfundur
- Lesa meira
Folalda- og ungfolasýning Náttfara
- Lesa meira
Framkvæmdaráðsfundur
- Lesa meira
Nýjustu fréttir
-
Folalda- og ungfolasýning Náttfara
fimmtudagur 26. jan. 2012 08:37 - Lestrar 14Folalda- og ungfolasýning Hrossaræktarfélagsins Náttfara verður í Melaskjóli, Melgerðismelum, laugardaginn 28. janúar 2012. Hrossin verða sköpulagsskoðuð frá kl. 10 og hlaupaæfingar hefjast kl. 13.
-
Barnalífeyrir vegna náms eða starfsþjálfunar
miðvikudagur 18. jan. 2012 15:08 - Lestrar 23Upplýsingar um barnalífeyri, þ.e. rétt til barnalífeyris og hvernig sótt er um, má lesa hér.
-
Ársreikningur 2011 Veiðifélags Eyjafjarðarár
miðvikudagur 18. jan. 2012 14:25 - Lestrar 14Aðalfundur Veiðifélags Eyjafjarðarár var haldinn í Funaborg miðvikudagskvöldið
11. janúar s.l. Ársreikning félagsins má lesa hér.
-
Bókun um Vaðlaheiðargöng
miðvikudagur 18. jan. 2012 11:21 - Lestrar 45Á fundi sveitarstjórnar 17. janúar 2012 var eftirfarandi bókun gerð:
„Í greinargerð IFS greiningar um framkvæmd Vaðlaheiðarganga kemur fram að ekki sé ágreiningur um þjóðhagslega arðsemi verkefnisins, en leitt líkum að því að auka þurfi eigið fé Vaðlaheiðarganga ehf. svo tryggja megi hagstæða fjármögnun til framtíðar.
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar lýsir vilja sínum til að auka hlutafé sitt í Vaðlaheiðargöngumum um allt að tvöföldun frá því sem áður hefur verið lofað svo hægt sé að hefja framkvæmdir við göngin sem allra fyrst.
Skorar sveitarstjórn á ríkisstjórn Íslands að samþykkja ríkisábyrgð á fjármögnun ganganna svo hægt sé að hefja framkvæmdir sem allra fyrst.
Þá má benda á að ríkissjóður fær 3-3,5 milljarða í beinar tekjur af framkvæmdinni á byggingartíma ganganna ef farið verður í hana. Þá fjármuni má nota í brýn verkefni í þágu samfélagsins.
Minnir sveitarstjórna á það að mjög litlu fé er varið til vegamála á landsbyggðinni þrátt fyrir síauknar álögur á bifreiðaeigendur.”
-
Bókasafn Eyjafjarðarsveitar
fimmtudagur 12. jan. 2012 11:57 - Lestrar 11Sýningin „Manstu eftir búðinni“ sem kemur frá Héraðsskjalasafninu á Akureyri hangir nú uppi á bókasafninu.
Hvernig væri að líta við og skoða sýninguna um leið og litið er á jólabækurnar eða allar hinar bækurnar og tímaritin og kannski fengin að láni ein eða tvær sem ekki er búið að lesa?
Opnunartímar safnsins:
Mánudagar kl. 9:00-12:30 og 13:00-16:00
Þriðjudagar kl. 9:00-12:30 og 16:00-19:00
Miðvikudagar kl. 9:00-12:30 og 16:00-19:00
Fimmtudagar kl. 9:00-12:30 og 16:00-19:00
Föstudagar kl. 9:00-12:30
Best er að ganga um dyr að austan (kjallari íþróttahúss) eða um sundlaugarinnganga og niður á neðri hæð.
Póstlistar
Auglýsingablað
Auglýsingar þurfa að berast skrifstofu Eyjafjarðarsveitar fyrir kl. 9 á miðvikudagsmorgnum, nema annað sé auglýst.
Hægt er að senda auglýsingar með tölvupósti á esveit hjá esveit.is




