Umsókn um heimaþjónustu

Öldruðum, öryrkjum og þeim sem eiga við tímabundin veikindi að stríða eða erfiðar félagslegar aðstæður er veitt heimaþjónusta á vegum sveitarfélagsins. Sækja þarf skriflega um þjónustuna til skrifstofu Eyjafjarðarsveitar en ráðgjafaþjónusta velferðarsviðs Akureyrarbæjar framkvæmir mat á þörfum umsækjenda samkvæmt þjónustusamningi þar um og gerir tillögu um umfang þjónustu í hverju tilviki.
Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar annast síðan framkvæmd þjónustunnar.
Nánari upplýsingar má fá hjá skrifstofu Eyjafjarðarsveitar í síma 463 0600 eða á netfanginu esveit@esveit.is

Umsókn um heimaþjónustu má prenta út og skila á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar eða á netfangið esveit@esveit.is

Gjaldskrá vegna heimaþjónustu má finna í listanum hér.

Síðast uppfært 09. júlí 2021
Getum við bætt efni síðunnar?