Lagt verður af stað gangandi frá Dalborg kl. 10 og gengið á bökkunum inn að Munkaþverárkirkju ( 4,5 km. önnur leið ). Fyrir þau sem kjósa heldur að ganga hálfa leið verður farið keyrandi frá Dalborg kl. 11 að kirkjunni og gengið til baka.
Í Munkaþverárkirkju er helgistund kl. 11.30 - 12.
Organisti er Þorvaldur Örn Davíðsson og Kirkjukór Grundarsóknar syngur. Prestur Jóhanna Gísladóttir.
Er stundinni í kirkjunni lýkur er gengið til baka í Dalborg þar sem boðið verður upp á vöfflukaffi og kassaklifur fyrir börn kl. 13 - 14.
Frjáls framlög í styrktarsjóð Dalbjargar.