Framkvæmdaráð

21. fundur 22. október 2012 kl. 09:09 - 09:09 Eldri-fundur

21. fundur Framkvæmdaráðs
haldinn  í fundarstofu 2, Skólatröð 9, föstudaginn 19. október 2012 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Elmar Sigurgeirsson aðalmaður, Einar Gíslason aðalmaður, Jón Stefánsson aðalmaður, Davíð ágústsson embættismaður og Jónas Vigfússon sveitarstjóri.

Fundargerð ritaði:  Jónas Vigfússon, sveitarstjóri.

 

Dagskrá:

1.  1209023 - Hækkun húsaleigu hjá íbúum Skólatraðar 7, 11 og 13
 á fundinn mættu leigjendur í Skólatröð 7, kjallara og 2.hæð og Skólatröð 11, 2. hæð. Lýstu þær óánægju sinni með fyrirhugaða hækkun á leiguupphæðum þess húsnæðis sem þær leigja.
Farið var í vettvangsskoðun og íbúðir skoðaðar.
ákveðið að gera kostnaðaráætlun vegna lagfæringa á íbúðunum og fjalla um á næsta fundi framkvæmdaráðs.
   
2.  1206011 - Nýbygging við Hrafnagilsskóla
 Framkvæmdaráð leggur til að því ásamt skólastjóra grunnskóla, aðstoðarskólastjóra leikskóladeildar og sveitarstjóra verði falið að hefja þarfagreiningu og undirbúning fyrir hönnun viðbyggingar við grunnskólann.
   
3.  1206002 - Framkvæmdir 2012
 Frestað.
   
4.  1202016 - Fjárhagsáætlun 2013 - 2015
 Frestað.
   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:45

Getum við bætt efni síðunnar?