Skipulagsnefnd

178. fundur 04. júní 2012 kl. 13:15 - 13:15 Eldri-fundur

Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 178. fundur skipulagsnefndar Eyjafjarðarsveitar
haldinn  í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 29. mars 2012 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
árni Kristjánsson Formaður, Emilía Baldursdóttir Aðalmaður, Sigurður Eiríksson Aðalmaður, Jón Stefánsson Aðalmaður, Sigurður Hólmar Kristjánsson Aðalmaður og Jónas Vigfússon sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði:  Jónas Vigfússon, sveitarstjóri

 

Dagskrá:

1.  1203011 - Reiðleiðir í Akureyrarkaupstað
 Skipulagsnefnd Akureyrar óskar eftir formlegri umsögn um tillögur að reiðleiðum á Akureyri.
í gildandi aðalskipulagi er gert ráð fyrir reiðvegi í Eyjafjarðarsveit vestan Eyjafjarðarbrautar vestri. óskað er eftir að gert verði ráð fyrir tengingu frá Akureyri inn á umræddan reiðveg. Að öðru leyti gerir skipulagsnefnd ekki athugasemdir við tillöguna innan marka Akureyrar.
   

2.  0810010 - Jódísarstaðir - Deiliskipulag íbúðarbyggðar
 Tekið var fyrir deiliskipulag að Jódísarstöðum, neðan vegar og sunnan ása. Lítilsháttar athugasemdir hafa komið frá Skipulagsstofnun og samþykkir nefndin að deiliskipulagið verði auglýst þegar nýr uppdráttur berst, þar sem tekið hefur verið tillit til athugasemda Skipulagsstofnunar.
   

3.  1203013 - Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi Gísla Hallgrímssonar skv. gististaðaflokki I
 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við erindið.
   

4.  1102018 - áætlun um endurskoðun aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar 2005-2025

 Rætt var um endurskoðun aðalskipulags og ákveðið að fjalla um breytingar á vinnufundi 12. apríl.
   


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15

Getum við bætt efni síðunnar?