Skipulagsnefnd

187. fundur 16. nóvember 2012 kl. 09:21 - 09:21 Eldri-fundur

187. fundur skipulagsnefndar Eyjafjarðarsveitar
haldinn  í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 15. nóvember 2012 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
árni Kristjánsson, Emilía Baldursdóttir, Sigurður Eiríksson, Jón Stefánsson, Sigurður Hólmar Kristjánsson og Jónas Vigfússon.

Fundargerð ritaði:  Jónas Vigfússon, sveitarstjóri.

 

Dagskrá:

1.  1211012 - Fjárhagsáætlun skipulagsnefndar 2013
 Gerð var tillaga að fjárhagsáætlun fyrir árið 2013. ætlunin er að fara í endurskoðun aðalskipulags á næsta ári og skýrir það hækkun milli ára.
   
2.  1003033 - Kaupangsbakkar - leyfi til efnistöku
 Hestamannafélagið Léttir óskar eftir leyfi til efnistöku fyrir landi sínu að Kaupangsbökkum. Landið er á náttúruminjaskrá og því hefur verið óskað eftir umsögn Umhverfisstofnunar.
ákveðið að óska einnig umsagnar umhverfisnefndar Eyjafjarðarsveitar og afgreiða erindið þegar umsagnir liggja fyrir.
   
3.  1210018 - Vegun ehf - umsókn um framkvæmdaleyfi í landi Akurs
 Vegun óskar eftir leyfi til efnistöku í landi Akurs. Nánari upplýsingar vantar í umsóknina um framkvæmdina.
Erindinu frestað.
   
4.  1210017 - Vegun ehf - umsókn um framkvæmdaleyfi í landi Víðiness
 Vegun óskar eftir leyfi til efnistöku í landi Víðiness. Nánari upplýsingar vantar í umsóknina um framkvæmdina.
Erindinu frestað.
   
5.  1209034 - Landsskipulagsstefna 2013-2024 og umhverfisskýrsla
 Fjallað var um tillögu að landskipulagsstefnu sem er í kynningu.
Umræður sköpuðust um stefnumörkun um búsetumynstur, en ekki talin ástæða til að gera athugasemd.
   
6.  1208016 - Torfufell - umsókn um byggingarreit
 Sigfríður Angantýsdóttir óskar eftir heimild fyrir byggingarreit fyrir hesthús á frístundalandi sínu að Torfufelli. Erindið hefur farið í grenndarkynningu og hefur hlotið samþykki næstu nágranna.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið í samræmi við 1. tl. 57. gr. skipulagslaga.
   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00

Getum við bætt efni síðunnar?