Skipulagsnefnd

78. fundur 23. maí 2007 kl. 10:31 - 10:31 Eldri-fundur

78. fundur skipulagsnefndar haldinn í fundarsal sveitarstjórnar að Syðra-Laugalandi þriðjudaginn 22. maí kl. 18.15.
Mætt voru óli þór ástvaldsson, Emilía Baldursdóttir, Karel Rafnsson, Einar G. Jóhannsson, Brynjar Skúlason og Bjarni Kristjánsson, sveitarstjóri, sem skráði fundargerð.

1. Leifsstaðabrúnir, beiðni um breytingu úr frístundasvæði í íbúðarbyggð.
Mættir voru eigendur frístundalóðanna nr. 9 og 10 í Leifsstaðabrúnum þau Ari Sigþór Edvaldsson, Minný Kristbjörg Eggertsdóttir, Bylgja Aradóttir og Gunnar Th. Gunnarsson f. h. eiganda lóðarinnar nr. 8 og Ingvar þóroddsson, lögfræðingur. Eigendur fyrrnefndra lóða Ari Sigþór, Minný, Bylgja og Gunnar hafa óskað eftir því að lóðunum verði breytt í íbúðarlóðir. Fleiri eigendur húsa á svæðinu hafa lýst yfir að þeir geri ekki athugasemd við breytinguna. Málið ekki afgreitt en nefndin ákvað að fara í vettvangsferð á svæðið.

2. Umsókn um leyfi til að byggja fjárhús á jörðinni Halldórsstöðum.
Guðbjörn Elfarsson f. h. Rósu Hreinsdóttur, eigenda og ábúenda Halldórsstaða, óskar eftir leyfi til að byggja fjárhús á jörðinni. Nefndin leggur til að erindið verði samþykkt.

3. Erindi um breytingu á byggingarreit húss á lóðinni nr. 1 í Brúnahlíð og byggging á aðstöðuhúsi.
Guðrún ösp Sævarsdóttir og Sigurður Eyþór Valgarðsson sækja um leyfi til að færa húsið fram um 1 m miðað við gildandi skipulag og að byggja lítið aðstöðuhús (ca. 10 ferm). Fyrir liggur uppdráttur þar sem nágrannar lýsa því yfir með áritun sinni að þeir geri ekki athugasemd við breytinguna. Nefndin leggur til að erindið verði samþykkt.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19.55.

Getum við bætt efni síðunnar?