Skólanefnd

200. fundur 04. júní 2012 kl. 13:36 - 13:36 Eldri-fundur

200. fundur skólanefndar Eyjafjarðarsveitar haldinn  í fundarstofu 1, Skólatröð 9, þriðjudaginn 8. maí 2012 og hófst hann kl. 20:30.
Fundinn sátu:
Sigríður Bjarnadóttir formaður, Sigurður Friðleifsson aðalmaður, Hólmgeir Karlsson aðalmaður, Valgerður Jónsdóttir aðalmaður, Sigmundur Guðmundsson aðalmaður, Jónas Vigfússon sveitarstjóri, Karl Frímannsson embættismaður, Hans Rúnar Snorrason áheyrnarfulltrúi, Inga Bára Ragnarsdóttir áheyrnarfulltrúi, þór Hauksson Reykdal áheyrnarfulltrúi, Harpa Friðriksdóttir áheyrnarfulltrúi og Hrund Hlöðversdóttir embættismaður.
Fundargerð ritaði:  Valgerður Jónsdóttir, ritari.

 

Dagskrá:

1.  1203015 - Samræming vistunargjalda 2012
 Farið yfrir afsláttarkjör á vistunargjöldum.   Veittur er 25% afsláttur fyrir annað barn, 50% fyrir þriðja barn og 100% fyrir fjórða barn. Afsláttarkjör hafa ekki gilt í skólavistun.  Skólanefnd leggur til að afsláttarkjör gildi einnig fyrir skólavistun, en afsláttarkjör verði að öðru leyti óbreytt.
   

2.  1205010 - Starfsmannamál Hrafnagilsskóla 2012-2013

 Karl Frímansson upplýsti að hann hafi fengið það starf sem skólanefnd hefur verið upplýst um að hann sótti um fyrr í vor.  Karl hefur sagt starfi sínu sem skólastjóri Hrafnagilsskóla lausu frá og með 1. ágúst.  Skólanefnd þakkar Karli kærlega fyrir það frábæra starf sem hann hefur unnið við Hrafnagilsskóla undanfarin ár.  Nefndin óskar Karli velfarnaðar á nýjum vettvangi.  Sveitarstjóra falið að leita til ráðningaskrifstofu um að auglýsa eftir nýjum skólastjóra sem fyrst.
   

3.  1205011 - Stofnbúnaður í almennum kennslustofum
 Karl lagði fram lista sem skólanefnd hafði óskað eftir um þann búnað sem eðlilegt er að teljist til stofnbúnaðar í almennum kennslustofum.  ákveðið að hafa listann til hliðsjónar og fara yfir þann búnað sem er í kennslustofum í skólanum.
   

4.  1103014 - Skólaakstur
 Rætt um þær reglur sem gilda um öryggismál í skólaakstri. 
   

5.  1205012 - Skóladagatal og túlkun kennsludaga og annarra skóladaga

 Borist hefur erindi frá menntamálaráðuneyti varðandi skóladagatal og túlkun kennsludaga og annarra skóladaga.  Skólanefnd telur ekki tilefni til að endurskoða skóladagatal.
   

6.  1205013 - Skólamálanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga

 Kynning á hlutverki og helstu störfum skólamálanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
   

7.  1205014 - Ytra mat grunnskóla
 Kynning á ytra mati grunnskóla.
   

8.  1205009 - Foreldrakönnun Krummakots, niðurstöður

 Hrund kynnti niðurstöður foreldrakönnunar sem gerð var á Krummakoti.  Niðurstöðurnar eru mjög jákvæðar fyrir starfið í leikskólanum.
   

9.  1205015 - Erindi er varðar stöðu sérkennslustjóra
 Hrund lagði fram erindi þar sem farið er fram á að heimild fáist fyrir 0,3 stöðugildi sérkennslustjóra við leikskólann frá og með næsta skólaári.  í dag eru stöðugildi deildarstjóra 2,7.   Skólanefnd samþykkir að leggja til að heimild verði veitt fyrir  þessari stöðu til eins árs frá og með næsta skólaári. Ekki er um hreina viðbót stöðugilda að ræða heldur breytingu á launaflokk.
   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 22:10

Getum við bætt efni síðunnar?